o

eg gaf..

júní 13, 2007 · 1 ummæli

soffiu action!

→ 1 CommentFlokkar: Uncategorized

sóley bloggar . . .

júní 13, 2007 · 1 ummæli

Hvað er munurinn á mér og pasta?!
- pasta er ekki með augu!!!

→ 1 CommentFlokkar: Uncategorized

Helst í fréttum

júní 9, 2007 · 4 Ummæli

Við höfum snúið bakinu við White ace. Aldrei aftur. Tími hvít-áss er klárlega liðinn

→ 4 CommentsFlokkar: Uncategorized

Gott karma

júní 7, 2007 · 2 Ummæli

Loksins kom að því. Þið getið tekið gleði ykkar á ný. Ég, Soffía, ákvað að blogga. Hvað kemur til? spyrja sig eflaust margir. Ástæðan er sú að núna eigum ég og Sóley vinkonu. Það er klárlega eitthvað sem heimurinn þarf að heyra. Við eigum nú nokkra vini en þeir eru allir karlkyns. Núna eru breyttir tímar!

Þessi vinskapur okkar byrjaði á mjög sérstakan hátt. Sjálf vill hún nýja vinkona okkar meina að þetta séu örlög. Fyrir tveim kvöldum vorum við Sóley í einkar tilgangslausum göngutúr niður Borough Highstreet, sem er mjög fjölfarin og stór gata. Þar sé ég veski liggja í tröppum, eitt, yfirgefið og hreinlega að bíða eftir að einhver myndi hirða sig. Við gerðum það auðvitað og trítluðum heim á leið. Í veskinu fundum við nafnspjald og hringdum í konuna sem átti það.

Hún elskaði okkur mikið þar sem þetta er ekki stundað hér í landi. Mér fannst reyndar rosa dúbíus þegar hún spurði mig hvað ég héti í þriðja skipti og hún spurði líka um símanúmerið mitt oftar en getur talist eðlilegt. Fyrsta hugmyndin var að hún væri fjörgömul og vissi ekki hvað snéri upp eða niður, en sussunei. Þegar við loksins hittum hana kom það á daginn að túttan var blekuð. Í þakklætisskyni gaf hún okkur ekki þessi 20pund sem hún hafði í veskinu sínu, heldur reyndi hún að fylla okkur og drakk sjálf með. Sá bjór sem hún drakk með okkur ýtti henni endanlega yfir brúnina og kvöldið endaði þannig að fertug, minnislaus og blekuð lesbía er æst í að fá okkur í tebolla í sumarbústað pabba hennar úti á landi. Hún vill líka kynna okkur fyrir vinum sínum og sýna okkur London. Við kíkjum vonandi í kaffi til hennar einn daginn.

Svo erum við að fara að vinna á útihátíð um helgina, það kemur bíll upp að dyrum og nær í okkur og við eyðum einni nótt þarna. Það er allt sem ég veit. En þetta verður örugglega voða gaman.

jibbí

→ 2 CommentsFlokkar: Uncategorized

gærkvöldið í myndum

júní 4, 2007 · 4 Ummæli

Við Soffía fórum í mat til Evu frænku minnar í gær.
Það gladdi mig mjög hvað þær tútturnar náðu vel saman :)
Við gæddum okkar á þessum dýrindis mat..
karrý kjúklingur held ég að það hafi verið. . . tíhí . .
ekki hengja mig ef ég hef rangt fyrir mér.
Við dönsuðum allar þrjár við elsku Hrólf.. og voru teknar myndir af því..

Hér er Soffía í funheitum dansi við Hrólf og virðist honum líka það vel svona allavega miðavið hvar hendin er staðsett . . .
woohoo! þetta er túttan ykkar í essinu sínu!!!

En fleiri fengu að taka í hrólf og hér er túttan ykkar í keleríi við Hrólf.. hann fékk mikið action þetta kvöld!

já Hrólfur var maður kvöldsins og má hér sjá hann í lostafullum sleik við Evu

En Hrólfur beið misnotkuninnar ekki bætur og ákvað að detta í sundur..
hér má sjá problem solving skills elsku Soffíu in full action (túttan er með þetta á cvinu sínu)

Hrólfur lagaðist og varð sami player og hann hefur ávalt verið . .

Eftir alla gleðina var haldið heim á leið transporið var strætó og fengum við nesti..
nestið var í vökva formi.. og þráðu tútturnar ykkar það meira en Hrólf..


í strætó var þvílík gleði en hún náðist því miður ekki í gæðum..

Eftir strætó ferðina kíktum við á strákana og fékk mark koss frá soffíu:)


sætu:)

Það náðist á filmu ein mynd af mér og Adam þar sem ég var mega asnaleg og önnur mynd þar sem hann var mega asnalegur… svo þær fá ekki að njóta heiðurssess á blogginu góða hinsvegar langar mig að enda þessa innihalds miklu færslu á….

Uppáhalds…

fólkinu mínu… sætusætu . .

mikil ást
Sóley

→ 4 CommentsFlokkar: Uncategorized

gleðifærsla jíha!

maí 31, 2007 · 2 Ummæli

Svona þar sem fólk er augljóslega að míga í sig á spenningi yfir næsta bloggi og sparar öll komment ..
þá hef ég ákveðið að skrifa aðra færslu . . !
Ég heyri fólk frá öllum heimshornum taka andköf áður en það hrópar af gleði.

Ég fór sumsé í þetta atvinnu viðtal í gær fann ekki lyklana mína svo ég hljóp út um dyrnar lyklalaus þar sem ég vildi ekki mæta of seint í viðtalið. Fattaði svo um leið og ég var búin að loka hurðinni að ég hafði gleymt símanum inni.
Viðtalið gekk nokkuð vel gæjinn sem ég talaði við var reyndar stór undarlegur, ramm fullorðinn og sagði “coolstuff” við öllu.
Þessi tvö orð sem ættu eingöngu að vera notuð af yngra fólki, krökkum eða bara helst engum hafa greinilega náð þessu manni langt í lífinu. Veit ekki hvort hann sagði þetta við mig þar sem ég var í yngri kanntinum eða hvort hann lifi bara með því að “coolstuff” sé the line to say.. Þetta er mér mikil mistería.

Eftir að ég kom útúr viðtalinu hugsaði ég með mér hvert ég ætti að fara til að komast heim en ákvað svo bara að fara einhvert þar sem mér lá ekkert brjálæðislega á að fara heim og sitja þar á tröppunum þangað til elsku tútta administrator væri búin í vinnunni. Ég labbaði um borgina í götóttum og rifnum skóm í rigningunni mér fannst ég lítils virði.
Rölti aðeins meðfram ánni og sá svo einhvern kastala þarna sem er víst eitthvað túrista attraction.
Rölti svo í áttina heim ætlaði mér að fara og kíkja á strákana á hostelinu rétt áður en ég kom mundi ég eftir því að það var miðvikudagur og dyrakóðanum er alltaf breytt á þriðjudögum svo ég ákvað að láta þessa heimsókn mína eiga sig. Ég var náttúrulega ekki með síma til að hringja í strákana heldur. Bummer.. !
Eftir þetta rölti ég aðalgötuna í okkar hverfi og komst að því að þar sem rónarnir og heimilisleysingjarnir sofa á nóttunni er ekki bókabúð eins og ég hélt heldur bókasafn.
Ég kíkti aðeins þarna inn og fór að glugga í einhverjar bækur, ég sem les ALDREI!
Kíkti aðeins í bókina Generation of swine eftir hunter s thomson.
og pantaði kite runner svona af því ég var þarna en hún var í útláni.
Fór á kaffihús, fékk mér einn latté sem er btw fyrsti kaffibollinn minn síðan ég flutti hingað og sötraði hann í rúmann klukktíma á meðan ég hlustaði á ipodinn og krassaði í notebook sem ég var með á mér.
Fór út kíkti eitthvað í garðinn sem er rétt hjá húsinu, sagan segir að þar á bakvið rafmagnskassa búi maður sem stundar það víst að stinga fólk og ræna skónum þeirra og selja fyrir eitt pund!
Held að viðkomandi einstaklingur hafi verið að ýkja lítilega, eða svona allavega í það minnsta.
Svo loksins kom Soffía heim og ég gat farið úr blautu sokkunum, klárlega gleðistund gærdagsins.

Fór Svo seinna um kvöldið á camden barfly með Guðrúnu þar sem við sáum ari shine, Silversun pickups og praying hands.
Það var nokkuð magnað flottur venue og fínir tónleikar. Ég komst líka að því að maður þarf að fara á tónleika til að sjá fallega karlmenn í þessari borg. Seinna fattaði ég svo að allir þessir fallegu karlmenn voru ekki héðan. Svo ég veit ekki hvað mér á að finnast.

Myndi skrifa meira en ég nenni því hreinlega ekki.
Svona ef heiminum langar að vita þá er ég búin að vera með brjálaðan hálsríg í tvo daga, skemmtilegt nokk!
Kommentið eða snáfiði af síðunni!
kveðja
Sóley

p.s. frjáls framlög í nýja skó handa mér eru vel þegin, já ég á bara eitt par af skóm og eru þeir götóttir!

→ 2 CommentsFlokkar: Uncategorized

viðtals geðveiki . .

maí 30, 2007 · 1 ummæli

Í dag/gær hvernig sem fólk kýs að líta á það, fór túttan ykkar í atvinnuviðtal.
Ég átti að mæta klukkan ellefu svo ég “vaknaði” klukkan sjö, fór út úr húsi um átta og rölti út á strætó stoppistöð var í einhverja tvo tíma í strætó var mætt þarna hálf ellefu, reiknaði með þessum hálf tíma ef ég myndi hugsanlega týnast eða ekki finna staðinn. En hann var vel falinn inn í þessu iðnaðar samfélagi sem fyritækið sem ég átti að mæta í. Þetta var án gríns heilt hverfi sem var bara fyrirtæki og á stoppustöðinni stóð “velkomin til (hvað það nú var sem staðurinn hét), iðnaðarsamfélagsins”.
Strætóinn var fullur þegar ég fór uppí og allir í kremju standandi þarna eins og sardínur í dós. Það breyttist allt eftir fjögur stopp og fengu þá allir sem eftir voru sæti. Smátt og smátt fór svo fólk að týnast út þangað til ég var ein eftir.
Fátækari en allir aðrir augljóslega þar sem strætó er ekki æskilegasti ferðamátinn við svona langferðir. Hinsvegar töluvert ódýrari en allar aðrar leiðir transports. Í næsta strætó var það ég, þrjár ca tíu ára stelpur og restin gamal menni sem ferðuðumst með stætó og allt gamla fólkið þekkti hvort annað. Rosalegur úthverfisfílíngur yfir þessu öllu saman þar sem fólk fór bara út á götu og hookaði sér far með strætó engar stoppi stöðvar. Rosalegt cult meðal eldriborgaranna.
Eftir þessa tveggja tíma stærtóferð mína mætti ég svo loks á áfangastaðinn og það fyrsta sem ég er látin gera í viðtalinu er að leysa einhver tuttugu stærðfræði dæmi og gera ritunarverkefni. Ég fékk fimm mínútur í þetta og náði rétt svo að klára áður en gæjinn kom aftur inn í herbergið. Ótrúlegt en satt náði ég að gera þessi stærðfræði dæmi eftir ENGAN svefn what so ever kvöldið áður. Nei það var ekki planað! Þrátt fyrir gott málfar og stafsetningu í ritunar verkefninu þá má guð vita hvað ég ritaði þar. Efast um að það hafi meikað mikið sens.
Ég tæklaði gæjann samt nokkuð vel í viðtalinu sjálfu og við röbbuðum þarna alveg heillengi um hluti viðkomandi og óviðkomandi viðtalinu.
Ég býst reyndar ekki við að fá þessa vinnu en ég græt það ekki, tveir tímar í strætó á hverjum degi aðra leið er kannski soldið mikið af því góða.
Annars er ég að fara í annað viðtal á morgun/dag fer eftir því hvernig fólk kýs að líta á það.
Ég fékk sumsé símtal frá einhverjum gæja fimm mínútum áður en ég gekk inn í þetta viðtal í dag. Ágætt að vita af því svona áður en ég gekk þar inn. En mailið sem ég sendi þeim gæja (þessum sem ég fer í viðtal til á morgun) inni hélt einmitt mikinn húmor og skrifaði ég t.d. að ég væri með undurfagurt bros og fannst ég rosalega fyndin.
Svo það er spurning hvort maður eigi að vakna örlítið fyrr og æfa sig að brosa fyrir viðtalið svo maður geti staðið undir rituðum orðum.
Ég er farin í háttinn.
Góða nótt!
Sóley

→ 1 CommentFlokkar: Uncategorized

gömlu seigu

maí 27, 2007 · Rita ummæli

Fyrir akkúrat viku síðan komu Óskar og Óli í heimsókn til okkar og hafa verið hér síðan.
Á þessum sama sunnudegi rétt eftir að þeir tóku af sér skóna, áður en tekið var upp úr töskum.
Var farið útí pakijoint (hverfisbúllan) og keyptur breezer, ekki einn ekki tveir heldur skammarlega margir.
Við hérna gömlu seigu (Sóley og Soffía ofkors) hneyksluðumst mikið og sötruðum á white ace. En þessa gullnámu vildu þeir ekki snerta.
En Óskar svarði fyrir sig! ; “Það er bara svo vont bragð af bjór” . .
við urðum kjaftstopp og leifðum litla stráknum að halda í þessa litlu virðingu sem eftir var.
Þetta sama kvöld fengum við mikið af fólki í heimsókn, Adam var þar kóngur allra gleði og reitti af sér brandarana.
Við Mark fórum að tala um mat sem leiddi af sér ferð í pakijoint og eldamennsku fyrir tíu manns.
Mark var mikið fyrir það að knúsa mig við eldamennskuna og mér leið í smástund eins og hann væri frá Ítalíu en ekki Suður Afríku.. haha mikil gleði við þessa matargerð.
Seinna um kvöldið fórum við svo á barinn fyrir utan Soffíu sem þurfti að vakna snemma fyrir vinnuna.
Þar hittum við Andy, töluðum við hann í fyrsta skipti en Andy er gaur sem við Soffía höfum verið að fylgjast með þar sem hann er mjög líkur Óskari.. síðan þá höfum við verið að vonast til að sjá hann aftur. Hann er ýkt hress peyji.

Allavega, Óskar má eiga það að hann er orðinn helvíti seigur. Á þriðjudegi var hann búinn að gefa skít í breezer og kominn í bjórinn á miðvikudegi var það jack í coke á barnum.

Gærdagurinn var svo alveg met skemmtilegur, allavega hjá okkur Soffíu þar sem við röltuðum niðrí bæ sötrandi á bjór og ákváðum að vera fyndnar (ekki að það sé eitthvað nýtt) og tókum myndir af okkur með túristum á trafalgar square án þeirrar vitundar.

Þessi mynd segir allt sem segja þarf

Eftir þessa gleði og gott labb heim í rigningunni fórum við svo í king’s cup með strákunum:)
Þvílík gleði sem það var, þessi leikur bíður upp á svo mikla gleði!

Svona fyrir þá sem vita ekki hvað ég er að tala um þá eru reglurnar eftir farandi

Tekið er stórt glas (hálfur líter eða meira)
Glasið sett á mitt borðið og spilastokk raðað í kring
Æskilegast er að allavega fjórir spili leikinn í einu en ekki of margir.
Skemmtilegast er að spila þegar fólk er búið með svona tvo bjóra.
Fólk dregur svo eitt spil í einu koll af kolli þar til fjórði kóngurinn er kominn.

1 – waterfall
2 – for you
3 – for me
4 – to the floor
5 – to the sky
6- for chicks
7 – thumb master
8 – pick a mate
9 – bust a rhyme
10 – for men
J – make a rule
Q – qwestion
K – kings cup

Þegar einhver dregur kóng á sá aðili að fylla glasið í miðjunni einn þriðja hver og sá sem dregur síðasta kónginn þarf að drekka allt glasið. Leikurinn er skemmtilegastur þegar leikmenn eru með mismunandi áfengi við hönd og drykkurinn í miðjunni verður þarf af leiðandi mjög súr.

Svo segir hvert spil hvað fólk á að gera hverju sinni og hverjir eiga að drekka.
Þetta ruglast svo allt saman þegar fólk er orðið drukkið og reglurnar orðnar fleiri og flóknari (samb. “J” spilinu)

Það er of mikil vinna að útskýra hvert spil á síðunni svo það verður að fá að bíða betri tíma.

Hingað til hefur Óli þurft að drekka kings cup tvisvar og Soffía einu sinni.. sjáum hvernig fer næst

Í öðrum fréttum við Soffía náðum að crasha góðgerðar fjáröflunar gleðskap, það var mjög erfitt að koma sér þangað inn enda mjög exclusive. Þessi gleðskapur átti sér stað á “súru” búllunni. Þar sem við hittum trésmiðinn, hann var ýkt spakur þarna með nýju klippinguna sína og bauð okkur upp á bjór. Soffía minntist á það að þetta væri ævintýri líkast þar sem trésmiðurinn er um talaður spaði á okkar heimili.
Gleðin náði síðan “hátindi” sínum þegar teitið kláraðist og söngkonan í glimmer kjólnum fór af sviði og við gerðum okkur líklegar til að fara. En þá kom að okkur kona og vildi vinsamlegast fá peninginn okkar, þar sem þetta var fjáröflunar samkoma. Hvernig í ósköpunum áttum við að vita það, illa óboðnar og áttum engan veginn heima í þessum hóp, okkur langaði bara líka að vera partur af gleðinni þar sem gleði er legendary á súru búllunni gerðist eflaust síðast á aldamótunum.
Við reyndum að halda kúlinu en það fór fyrir lítið þegar konan sagði gífurlega hneyksluð “just anything you have on you a couple of quid would be fine”- En við þurftum að segja henni og öllum heimilislausu börnunum í heiminu að fara í rassgat þar sem við vorum ekki einu sinni með 1p á okkur.
Ekki gerði það ástandið betra að við héldum báðar á sitthvorum bjórnum, en hann var gjöf Huge (trésmiðarins)
Eftir þessa gleði fórum við upp í eldhús þar sem við munchuðum háklassa mat a la david og horfðum á training day.

Kv. Sóley og Soffía :)

→ Leave a CommentFlokkar: Uncategorized

Village People

maí 25, 2007 · 1 ummæli

Við fórum með strákana á Ed’s Diner í gær..
Það ku vera okkar uppáhalds matsölustaður
Þetta er 60’s diner fyrir þá sem ekki vita með jukebox-i með 60’s lögum..
alltaf sömu 100 lögin sem hljóma þar .. ekki einu sinni 100.. eflaust nær 50
Við Soffía vorum einmitt að hlægja að því að Village people – YMCA fengið eflaust að hljóma þarna hvað oftast, væri eflaust að gera starfsfólkið brjálað..
Mínútu síðar, setur Óskar pening í kassann og request-ar YMCA..
Við ákváðum að vera ýkt hress og  gera YMCA gleðina að alvöru..
We did the “YMCA”..
og aftur.. og aftur
þangað til ein tútta sem var að vinna þarna kom að okkur og bað okkur vinsamlegast um að hætta að biðja um YMCA..
hér eru myndir af því . .


já við erum fackin hresst fólk..
Enda gáfum við staðnum líf og allir voru farnir að hlægja útaf okkur,.
Við erum hér með þekkt sem hressa fólkið  á Ed’s Diner . .
Hugsanlega ekki af túttunni sem bað okkur um að fara frá jukebox-inu en allavega öllum öðrum þarna inni..

Enjoy!!

→ 1 CommentFlokkar: Uncategorized

í fréttum er . .

maí 20, 2007 · 3 Ummæli

. . . Óskar og Óli eru hér
. . Við Soffíu fórum í kirkju í morgun
. . við keyptum ís í lidl’s, Soffía náði að stúta tvem fyrir heimkomu, impressive
. . fólk er hér að muncha bella petsu
. . Mark kíkir kannski yfir í kvöld
. . Trésmiðurinn fór í klippingu
. . Soffía stal white ace úr örmunum á áfengisdauðum manni í gær
annað í fréttum . .
uhhh
Ekkert!

→ 3 CommentsFlokkar: Uncategorized