
Endirinn er nær, spurning hvort maður stingi sér til sunds og reyni að ná í bakkann hinumegin eða setjist aðeins niður á bryggjunni.
Margt að blogga um, en vegna lítillar nennu höfum við verið frekar súrar hvað varðar blogg skrif, margt sem á daga okkar hefur drifið. Ég er hætt í vinnunni og það eru innað við tvær vikur þangað til plönuð brottför okkar Soffíu til Íslands á að eiga sér stað.
Þegar við komum hingað var ekki lauf að sjá á trjánum, á innað við tvem vikum (áður en við fluttum í íbúðina) var vorið komið og fylgdumst við með sumrinu koma með skemmtilegum uppákomum sem sumrið hafið að bjóða.
Núna erum við hinsvegar að fylgjast með sumrinu fjarast og haustinu að koma. . .
Þá veit ég að þetta er að verða búið, þótt haust sé minn uppáhalds árstími og ekkert jafnast á við haust í Lundúnum.
Margt sem ég mun sakna, margt sem ég get ekki komið til baka til ef við förum núna . .
Það eru nú þegar komnir leigendur í íbúðina okkar. . sem flytja inn um leið og við förum núna eftir tvær vikur.
Ég á eftir að sakna rebba.
peace
Sóley
4 responses so far ↓
Elías // september 9, 2007 kl. 3:33 pm
Ísland hlakkar til.
ingi // september 13, 2007 kl. 8:59 am
já, fun while it lasted,,,drífa sig á klakann
Erla E. // september 16, 2007 kl. 11:52 am
getiði samt ekki verið smá internetfyndnar áfram? það lífgar uppá reykvísk vinnukvöld!
Svenni // september 23, 2007 kl. 11:06 am
það er eins gott að þú verðir heima um jólin stelpa.