
Endirinn er nær, spurning hvort maður stingi sér til sunds og reyni að ná í bakkann hinumegin eða setjist aðeins niður á bryggjunni.
Margt að blogga um, en vegna lítillar nennu höfum við verið frekar súrar hvað varðar blogg skrif, margt sem á daga okkar hefur drifið. Ég er hætt í vinnunni og það eru innað við tvær vikur þangað til plönuð brottför okkar Soffíu til Íslands á að eiga sér stað.
Þegar við komum hingað var ekki lauf að sjá á trjánum, á innað við tvem vikum (áður en við fluttum í íbúðina) var vorið komið og fylgdumst við með sumrinu koma með skemmtilegum uppákomum sem sumrið hafið að bjóða.
Núna erum við hinsvegar að fylgjast með sumrinu fjarast og haustinu að koma. . .
Þá veit ég að þetta er að verða búið, þótt haust sé minn uppáhalds árstími og ekkert jafnast á við haust í Lundúnum.
Margt sem ég mun sakna, margt sem ég get ekki komið til baka til ef við förum núna . .
Það eru nú þegar komnir leigendur í íbúðina okkar. . sem flytja inn um leið og við förum núna eftir tvær vikur.
Ég á eftir að sakna rebba.
peace
Sóley