o

Entries from ágúst 2007

ég ætti kannski ekki að vera að blogga . .

ágúst 22, 2007 · 2 Ummæli

.. heldur ad eyða tímanum í að koma mér af stað út í banka og svo niðrí vinnu.
þannig að þetta verður stutt í dag . .

í morgunmat fékk ég mér bacon egg og súkkulaði shake.
Ég vil kenna föður mínum um ef ég fer að fitna.

Pabbi kom í heimsókn og var hér yfir helgina.
Við elduðum lummur, drukkum shake, kaffi te.. höfðum það náðugt.
Versluðum á krílin (kemur kannski úr harðri átt að kalla þau kríli, þar sem pabbi keypti peysu á mig í barnadeildinni í hm, þad var ekki stærsta peysan btw)
Fórum á gigs sötruðum öl og borðuðum fitandi mat.

Í gær horfðum við Soffía á mynd sem heitir “Santa clause conquers the martians” merkilega ágæt ræma það.
Maður hefði nú gefið þessu prumpudóma á yngri árum en þetta er svo gamalt og asnalegt að maður verður að hlægja að þessu. Þetta er líka eflaust eina bíómyndin sem jólasveinninn kemur við sögu sem er ekkert jólaleg.

Skrifa meira síðar,
xo
Sóley

Flokkar: Uncategorized