Ég hef ekkert ritað hér í háa herrrans tíð, en nú er runnin upp sögustund. Svona í tilefni þess að ég er hundelt af hryðjuverkamönnum. Ég man ekki hvort við sögðum frá því hér, en fyrir nokkrum vikum síðan fórum við í göngutúr niður í bæ þar sem allt var afgirt út af hryðjuverkaógn. Við í sakleysi okkar stóðum í þeirri trú að einhverjir miklir spaðar væru að taka upp bíómynd. En nei, það stóð til að sprengja upp lýðinn. Það hefur ekkert bólað á þessum sprengjugæjum síðan þá og flestir löngu búnir að gleyma þessari uppákomu og einbeita sér nú fúll tæm að flóðunum, enda mun meira spennandi viðfangsefni. Nema í morgun. Þá hafði ég bestu afsökun í öllum heila heiminum fyrir því að vera of sein á ferð. Þegar ég mætti galvösk til vinnu nokkrum mínútum of seint og fékk að heyra “rosalega er gaman að sjá þig svona snemma í því í dag..” (hárfín kaldhæðni, prik fyrir þetta) gat ég með góðri samvisku svarað “En tappi minn kær, þetta er allt saman hryðjuverkamönnunum að kenna.” Það voru semsagt löggur, borðar, bílar og blikkandi ljós út um fokking allt. Einhvers staðar fann einhver “grunsamlegan pakka” fyrir utan og kallaði út allar löggur í heimi. Það var ekki nóg að girða af eina götu. Nei það mátti girða af götuna sem fyrirtækið stendur við, almenningsgarðinn á móti því, loka Temple lestastöðinni og binda fyrir næstu götu á eftir. Ég var komin hálfa leiðina að Embankment þegar ég komst framhjá lögguþyrpingunni. Svo þegar ég loksins komst inn í sjálft fyrirækið var mér bannað að fara út af mínu vinnusvæði. Ég ætlaði að ljósrita nokkur blöð, svona þar sem það hefur ekki verið álitið hættulegt hingað til. En mér var sagt að “í varúðarskyni” mætti ljósritun fara í tímabundið rassgat.
Klukkan hálftíu var það svo tilkynnt í hátalarakerfinu að lögreglan hafi lýst því yfir að svæðið væri nú öruggt.
Soffía
1 response so far ↓
Svenni // ágúst 18, 2007 kl. 3:52 pm
Mig langar í nýja færslu