o

Entries from júlí 2007

þessi færsla fær engan tiltil

júlí 26, 2007 · 1 ummæli

Ég hef ekkert ritað hér í háa herrrans tíð, en nú er runnin upp sögustund. Svona í tilefni þess að ég er hundelt af hryðjuverkamönnum. Ég man ekki hvort við sögðum frá því hér, en fyrir nokkrum vikum síðan fórum við í göngutúr niður í bæ þar sem allt var afgirt út af hryðjuverkaógn. Við í sakleysi okkar stóðum í þeirri trú að einhverjir miklir spaðar væru að taka upp bíómynd. En nei, það stóð til að sprengja upp lýðinn. Það hefur ekkert bólað á þessum sprengjugæjum síðan þá og flestir löngu búnir að gleyma þessari uppákomu og einbeita sér nú fúll tæm að flóðunum, enda mun meira spennandi viðfangsefni. Nema í morgun. Þá hafði ég bestu afsökun í öllum heila heiminum fyrir því að vera of sein á ferð. Þegar ég mætti galvösk til vinnu nokkrum mínútum of seint og fékk að heyra “rosalega er gaman að sjá þig svona snemma í því í dag..” (hárfín kaldhæðni, prik fyrir þetta) gat ég með góðri samvisku svarað “En tappi minn kær, þetta er allt saman hryðjuverkamönnunum að kenna.” Það voru semsagt löggur, borðar, bílar og blikkandi ljós út um fokking allt. Einhvers staðar fann einhver “grunsamlegan pakka” fyrir utan og kallaði út allar löggur í heimi. Það var ekki nóg að girða af eina götu. Nei það mátti girða af götuna sem fyrirtækið stendur við, almenningsgarðinn á móti því, loka Temple lestastöðinni og binda fyrir næstu götu á eftir. Ég var komin hálfa leiðina að Embankment þegar ég komst framhjá lögguþyrpingunni. Svo þegar ég loksins komst inn í sjálft fyrirækið var mér bannað að fara út af mínu vinnusvæði. Ég ætlaði að ljósrita nokkur blöð, svona þar sem það hefur ekki verið álitið hættulegt hingað til. En mér var sagt að “í varúðarskyni” mætti ljósritun fara í tímabundið rassgat.

Klukkan hálftíu var það svo tilkynnt í hátalarakerfinu að lögreglan hafi lýst því yfir að svæðið væri nú öruggt.

Soffía

Flokkar: Uncategorized

M/N?

júlí 15, 2007 · Rita ummæli

Örstutt blogg hér, tútturnar nývaknaðar og Soffía er að gera til morgunmat.
Nú hef ég unnið í nýju vinnunni minni í tvær vikur og ég er alltaf þreyttari en allt þegar vinnudeginum líkur.
Tveir mismunandi staðir sem ég skiptist á að vinna á annar í 20 mín göngufæri og hinn í 50 mín göngu/lestar/strætófæri.
Staðurinn sem er lengra í burtu opnar líka klukkutíma fyrr þannig að það getur ruglað mig rosalega þegar ég er að flakka á milli staða mikið. Svona upp á svefninn.
Á föstudaginn var myndartaka upp í vinnu, hún átti sér stað í sama office space-i og ég vinn í.
Sat þarna ýkt spök við mína tölvu með nakið fólk á kanntinum.
Hressandi dæmi.

Við komumst að þvi um daginn að Mikki vinur okkar (ástralinn sem ég reyndi að ljúga að umheiminum að væri kærasti Soffíu)
Hann heitir ekkert Mick hann heitir Nick eða Nicholas. Mjög pínlegt moment þegar þetta komst upp á föstudaginn.
Við búnar að kalla hann Mick í 4 mánuði. Ooops!
Annars ætlar kallinn að kíkja yfir á eftir og grilla ofan í tútturnar sínar:)

Síðustu dagar og vikur hafa mikið farið í að hanga með Andy þar sem hann mun yfirgefa okkur núna í lok mánaðarins.

annars er fullt að frétta, það er bara lítið að frétta sem ég kæri mig um að setja inn á bloggið;)

-soley

Flokkar: Uncategorized

Túttan að missa sig!

júlí 5, 2007 · 2 Ummæli

Svo mikið að frétta að það kemst ekki fyrir í einu bloggi.
Fyrir stuttu fórum við á tónleika með Micky Avalon, það vera rosalega gaman þar sem Mikki kallinn hefur own-að toppsætin á itunestopplistunum í öllum tölvum og ipodum sem koma inn á þetta heimili.
Ég missti mig í myndatökum og myndbandstökum þetta kvöld, en vegna lítilla nennu fer þetta ekki strax á netið.
Túttan ykkar er líka komin með vinnu og það í fetish búð, ekki nóg með það þá er túttan ykkar að leita sér að part time vinnu ofan á það.
Sjá hvort ég finni eins og kvöldvinnu tvö kvöld i viku eda eitthvað sniðugt.
Búin að spamma hotel bar-i og læti.
Veit ekki hvort ég eigi eftir að nenna ganga mikið á eftir þessari partime vinnu pælingu minni, en við erum orðnar peningagráðugar.

Loksins finnst mér ég hafa tilgang hér, ég er ekki heima að mygla allan daginn og leita að vinnu og taka til allandaginn.
Eða fara á fyllerí í garðinum með Mark í sólinni og er blekuð þegar Soffía kemur heim úr vinnunni.
Það gerðist reyndar bara tvisvar.

Ég er samt alltaf að spyrja stelpurnar sem ég vinn með hvað hitt og þetta er þarna í búðinni þar sem helmingurinn af þessu er eitthvað sem er svo far beyond my imagination að það nær engri átt!

Heimilið er fullt af fetish bæklingum og það hefur haldið lífinu í öllum partýum og samkomum í húsinu öllu.
Í einum bæklingnum fundum við þessa snilld.
Þessi gerð er reyndar ekki til í búðinni.
En hún heitir “I rub my bondage duckie”
Ég ætti ekki að þurfa útskýra tilgang baðandarinnar fyrir lekandi líðnum.

eeeen á morgun á ég frí og þá verða borgaðir reikningar veij!
ég kveð að sinni,
Sóley

e.s. Soffía er búin að vera að fara á kostum í kvöld, búin að halda þvílíkar einræður hérna upp úr svefni og gekk áðan í svefni. Þessi gleði á sér venjulega stað á hverju kvöldi mér til mikillar gleði.
Ég tel það vera mikinn kost að geta skemmt fólki hvort sem maður er vakandi eða sofandi.

once again. . .
peace,
Sóley

Flokkar: Uncategorized