o

Ekki rúnka nautinu…

júní 18, 2007 · 1 ummæli

Í gær, á sjálfan þjóðhátíðardag Íslendinga, fórum við, ásamt Guðrúnu, á Íslendingatónlkeika. Æla og Trabant léku fyrir dansi og stóðu sig alveg hreint með prýði. Á undan þeim spilaði einhver sem var svo slakur að við teljum hann ekki með. Hann fær ekki að vera hluti af þessu kvöldi og er hér með gleymdur. En þarna heyrðum við 17.júní lagið, Öxar við ánna og annað í þeim ofurklassa. Það var voða gaman eftir langa dvöl í útlandinu.

Fyrr um daginn kíktum við í Hampstead heath, en það er risarisastór almenningsgarður inní borginni. Adam sagði okkur að úr þessum garði gæti maður séð yfir alla London. Það reyndist vera lýgi en við sáum samt fullt af fólki í sleik og íra sem sátu við stein að sniffa poppers. Kannski ekki sambærilegt, en við gerum gott úr því sem við höfum.

Það vantar eitthvað niðurlag á þessa bloggfærslu en ég bara nenni ekki að spá í því

-Soffía
——————————————————————-

Ákvað að bæta við myndum á þessa færslu
kveðja Sóley


Rómantík


Skrítið tré


Lækjarspræna


Inngangur helvítis

Skemmtilega fjólublátt tré


Stranglega bannað að hjóla hér


Ógeðsleg skordýr


Vinir okkar sem buðu okkur í teiti, þeir áttu öl og poppers.
Við afþökkuðum pent.
Annars er gaurinn sem liggur skuggalega lýkur Guðmundi Vestmann.


Ælustrákar í sínu fínasta taui.

Flokkar: Uncategorized

1 response so far ↓

  • solay // júní 26, 2007 kl. 12:20 am

    Sko ég held að þessi staður sem Adam var að tala um sé Highgate en það er partur af hampstead heath sem við fórum ekki á..
    meikar allavega sens ef madur spáir í nafninu.
    Já ég ætla að halda því fram, við verðum að gefa hampstead heath annan sjéns.
    svona þegar vel viðrar:)

Rita ummæli