“soffia ertu i baði?”
“nei”
“hvað ertu að gera?”
“klippa á mér hárið”
smá retouch á gellan er orðin fín og sæt þökk sé mér og kjúklingaskærunum
spurning hvort okkur finnist þetta jafn sniðugt á morgun..
“soffia ertu i baði?”
“nei”
“hvað ertu að gera?”
“klippa á mér hárið”
smá retouch á gellan er orðin fín og sæt þökk sé mér og kjúklingaskærunum
spurning hvort okkur finnist þetta jafn sniðugt á morgun..
Flokkar: Uncategorized
Ég er veik í dag og heimsbyggðin þarf að vita það. Ég fór ekki í vinnuna sem þýðir að í dag fæ ég enga köku. Harði, harði heimur.
Flokkar: Uncategorized
Í gær, á sjálfan þjóðhátíðardag Íslendinga, fórum við, ásamt Guðrúnu, á Íslendingatónlkeika. Æla og Trabant léku fyrir dansi og stóðu sig alveg hreint með prýði. Á undan þeim spilaði einhver sem var svo slakur að við teljum hann ekki með. Hann fær ekki að vera hluti af þessu kvöldi og er hér með gleymdur. En þarna heyrðum við 17.júní lagið, Öxar við ánna og annað í þeim ofurklassa. Það var voða gaman eftir langa dvöl í útlandinu.
Fyrr um daginn kíktum við í Hampstead heath, en það er risarisastór almenningsgarður inní borginni. Adam sagði okkur að úr þessum garði gæti maður séð yfir alla London. Það reyndist vera lýgi en við sáum samt fullt af fólki í sleik og íra sem sátu við stein að sniffa poppers. Kannski ekki sambærilegt, en við gerum gott úr því sem við höfum.
Það vantar eitthvað niðurlag á þessa bloggfærslu en ég bara nenni ekki að spá í því
-Soffía
——————————————————————-
Ákvað að bæta við myndum á þessa færslu
kveðja Sóley

Rómantík

Skrítið tré

Lækjarspræna

Inngangur helvítis

Skemmtilega fjólublátt tré

Stranglega bannað að hjóla hér

Ógeðsleg skordýr

Vinir okkar sem buðu okkur í teiti, þeir áttu öl og poppers.
Við afþökkuðum pent.
Annars er gaurinn sem liggur skuggalega lýkur Guðmundi Vestmann.

Ælustrákar í sínu fínasta taui.
Flokkar: Uncategorized
Hvað er munurinn á mér og pasta?!
- pasta er ekki með augu!!!
Flokkar: Uncategorized
Við höfum snúið bakinu við White ace. Aldrei aftur. Tími hvít-áss er klárlega liðinn
Flokkar: Uncategorized
Loksins kom að því. Þið getið tekið gleði ykkar á ný. Ég, Soffía, ákvað að blogga. Hvað kemur til? spyrja sig eflaust margir. Ástæðan er sú að núna eigum ég og Sóley vinkonu. Það er klárlega eitthvað sem heimurinn þarf að heyra. Við eigum nú nokkra vini en þeir eru allir karlkyns. Núna eru breyttir tímar!
Þessi vinskapur okkar byrjaði á mjög sérstakan hátt. Sjálf vill hún nýja vinkona okkar meina að þetta séu örlög. Fyrir tveim kvöldum vorum við Sóley í einkar tilgangslausum göngutúr niður Borough Highstreet, sem er mjög fjölfarin og stór gata. Þar sé ég veski liggja í tröppum, eitt, yfirgefið og hreinlega að bíða eftir að einhver myndi hirða sig. Við gerðum það auðvitað og trítluðum heim á leið. Í veskinu fundum við nafnspjald og hringdum í konuna sem átti það.
Hún elskaði okkur mikið þar sem þetta er ekki stundað hér í landi. Mér fannst reyndar rosa dúbíus þegar hún spurði mig hvað ég héti í þriðja skipti og hún spurði líka um símanúmerið mitt oftar en getur talist eðlilegt. Fyrsta hugmyndin var að hún væri fjörgömul og vissi ekki hvað snéri upp eða niður, en sussunei. Þegar við loksins hittum hana kom það á daginn að túttan var blekuð. Í þakklætisskyni gaf hún okkur ekki þessi 20pund sem hún hafði í veskinu sínu, heldur reyndi hún að fylla okkur og drakk sjálf með. Sá bjór sem hún drakk með okkur ýtti henni endanlega yfir brúnina og kvöldið endaði þannig að fertug, minnislaus og blekuð lesbía er æst í að fá okkur í tebolla í sumarbústað pabba hennar úti á landi. Hún vill líka kynna okkur fyrir vinum sínum og sýna okkur London. Við kíkjum vonandi í kaffi til hennar einn daginn.
Svo erum við að fara að vinna á útihátíð um helgina, það kemur bíll upp að dyrum og nær í okkur og við eyðum einni nótt þarna. Það er allt sem ég veit. En þetta verður örugglega voða gaman.
jibbí
Flokkar: Uncategorized
Við Soffía fórum í mat til Evu frænku minnar í gær.
Það gladdi mig mjög hvað þær tútturnar náðu vel saman ![]()
Við gæddum okkar á þessum dýrindis mat..
karrý kjúklingur held ég að það hafi verið. . . tíhí . .
ekki hengja mig ef ég hef rangt fyrir mér.
Við dönsuðum allar þrjár við elsku Hrólf.. og voru teknar myndir af því..

Hér er Soffía í funheitum dansi við Hrólf og virðist honum líka það vel svona allavega miðavið hvar hendin er staðsett . . .
woohoo! þetta er túttan ykkar í essinu sínu!!!
En fleiri fengu að taka í hrólf og hér er túttan ykkar í keleríi við Hrólf.. hann fékk mikið action þetta kvöld!

já Hrólfur var maður kvöldsins og má hér sjá hann í lostafullum sleik við Evu

En Hrólfur beið misnotkuninnar ekki bætur og ákvað að detta í sundur..
hér má sjá problem solving skills elsku Soffíu in full action (túttan er með þetta á cvinu sínu)

Hrólfur lagaðist og varð sami player og hann hefur ávalt verið . .
Eftir alla gleðina var haldið heim á leið transporið var strætó og fengum við nesti..
nestið var í vökva formi.. og þráðu tútturnar ykkar það meira en Hrólf..

í strætó var þvílík gleði en hún náðist því miður ekki í gæðum..
Eftir strætó ferðina kíktum við á strákana og fékk mark koss frá soffíu:)

sætu:)
Það náðist á filmu ein mynd af mér og Adam þar sem ég var mega asnaleg og önnur mynd þar sem hann var mega asnalegur… svo þær fá ekki að njóta heiðurssess á blogginu góða hinsvegar langar mig að enda þessa innihalds miklu færslu á….
…
…
Uppáhalds…

fólkinu mínu… sætusætu . .
mikil ást
Sóley
Flokkar: Uncategorized