Svona þar sem fólk er augljóslega að míga í sig á spenningi yfir næsta bloggi og sparar öll komment ..
þá hef ég ákveðið að skrifa aðra færslu . . !
Ég heyri fólk frá öllum heimshornum taka andköf áður en það hrópar af gleði.
Ég fór sumsé í þetta atvinnu viðtal í gær fann ekki lyklana mína svo ég hljóp út um dyrnar lyklalaus þar sem ég vildi ekki mæta of seint í viðtalið. Fattaði svo um leið og ég var búin að loka hurðinni að ég hafði gleymt símanum inni.
Viðtalið gekk nokkuð vel gæjinn sem ég talaði við var reyndar stór undarlegur, ramm fullorðinn og sagði “coolstuff” við öllu.
Þessi tvö orð sem ættu eingöngu að vera notuð af yngra fólki, krökkum eða bara helst engum hafa greinilega náð þessu manni langt í lífinu. Veit ekki hvort hann sagði þetta við mig þar sem ég var í yngri kanntinum eða hvort hann lifi bara með því að “coolstuff” sé the line to say.. Þetta er mér mikil mistería.
Eftir að ég kom útúr viðtalinu hugsaði ég með mér hvert ég ætti að fara til að komast heim en ákvað svo bara að fara einhvert þar sem mér lá ekkert brjálæðislega á að fara heim og sitja þar á tröppunum þangað til elsku tútta administrator væri búin í vinnunni. Ég labbaði um borgina í götóttum og rifnum skóm í rigningunni mér fannst ég lítils virði.
Rölti aðeins meðfram ánni og sá svo einhvern kastala þarna sem er víst eitthvað túrista attraction.
Rölti svo í áttina heim ætlaði mér að fara og kíkja á strákana á hostelinu rétt áður en ég kom mundi ég eftir því að það var miðvikudagur og dyrakóðanum er alltaf breytt á þriðjudögum svo ég ákvað að láta þessa heimsókn mína eiga sig. Ég var náttúrulega ekki með síma til að hringja í strákana heldur. Bummer.. !
Eftir þetta rölti ég aðalgötuna í okkar hverfi og komst að því að þar sem rónarnir og heimilisleysingjarnir sofa á nóttunni er ekki bókabúð eins og ég hélt heldur bókasafn.
Ég kíkti aðeins þarna inn og fór að glugga í einhverjar bækur, ég sem les ALDREI!
Kíkti aðeins í bókina Generation of swine eftir hunter s thomson.
og pantaði kite runner svona af því ég var þarna en hún var í útláni.
Fór á kaffihús, fékk mér einn latté sem er btw fyrsti kaffibollinn minn síðan ég flutti hingað og sötraði hann í rúmann klukktíma á meðan ég hlustaði á ipodinn og krassaði í notebook sem ég var með á mér.
Fór út kíkti eitthvað í garðinn sem er rétt hjá húsinu, sagan segir að þar á bakvið rafmagnskassa búi maður sem stundar það víst að stinga fólk og ræna skónum þeirra og selja fyrir eitt pund!
Held að viðkomandi einstaklingur hafi verið að ýkja lítilega, eða svona allavega í það minnsta.
Svo loksins kom Soffía heim og ég gat farið úr blautu sokkunum, klárlega gleðistund gærdagsins.
Fór Svo seinna um kvöldið á camden barfly með Guðrúnu þar sem við sáum ari shine, Silversun pickups og praying hands.
Það var nokkuð magnað flottur venue og fínir tónleikar. Ég komst líka að því að maður þarf að fara á tónleika til að sjá fallega karlmenn í þessari borg. Seinna fattaði ég svo að allir þessir fallegu karlmenn voru ekki héðan. Svo ég veit ekki hvað mér á að finnast.
Myndi skrifa meira en ég nenni því hreinlega ekki.
Svona ef heiminum langar að vita þá er ég búin að vera með brjálaðan hálsríg í tvo daga, skemmtilegt nokk!
Kommentið eða snáfiði af síðunni!
kveðja
Sóley
p.s. frjáls framlög í nýja skó handa mér eru vel þegin, já ég á bara eitt par af skóm og eru þeir götóttir!





