o

Entries from apríl 2007

Hagkvæmasti fyllarinn á svæðinu

apríl 30, 2007 · 2 Ummæli

 

Flokkar: Uncategorized

Sainsbury’s – making life taste better

apríl 30, 2007 · Rita ummæli

Myndir þú . .
.. Gæða þér á þessum félaga

 

 

.. takandi til greina að viðkomandi er sprell lifandi og on the move!

 

Fyrir einn svona?

 

 

Hvað með einn svona?

 

 

Hvað með ..

Flokkar: Uncategorized

Prótín! Jibbí, Prótín!

apríl 29, 2007 · 1 ummæli

Já í dag fengum við prótín. Þetta var þriðja, jafnvel fjórða máltíðin sem var sett effort í. Og í annað sinn áttum við hlut að máli. Nei ég lýg. Ég átti ekki hlut að máli. Sóley sá um þetta. En ég skrælaði næpurnar. Flott soffía, flott. Þú ert ómissandi. En óháð því fengum við einhverja næringu. Jess! Við deyjum ekki úr pasta-eitrun fyrr en einhvern tíman í næstu viku. Bambi sá fyrir prótíni. Grænmetisætur farið í rassgat, já við elduðum bamba. Adam var í heimsókn og kunni ekki að meta athæfið -en hvernig haldið þið að mamma bamba hafi dáið? Jú einhver brjálaður skandinavíu-búi drap hana. Sárt en satt. Við sem höfum lifað á pasta og brauði (=hveiti!) í marga marga daga söknum bamba bara ekki vitund. Aðal áhyggjuefnið var hvort við ættum að hafa stilkana á sveppunum eða ekki. Ég er all for enga stilka… Bara betra þannig. Þannig vildi bambi hafa það. Mér finnst bara rétt að máltíðin fái að ráða.

í öðrum fréttum: ekkert

.
.

Svekkjandi

bambi kallinn

þessi máltíð tók sólahring í undirbúning. (sóley sá líka um undirbúninginn). Rauðvínsleginn og gegnsýrður af berjum. Við klárðum rauðviníð og átum bamba. HAH! Við eitt – bambi núll! Bráðum borðum við strút og kjúkling. Svo eldaði sóley pastarétt í gær sem telst líka sem effort máltíð. Það eru tvær effort máltíðir sem við höfum átt, af fjórum sem hafa verið eldaðar á þessu heimili. Vel gert við. Ég er ekki frá því að sóley hafi sigrað bæði adam og david. Flott hjá þér tútta.

Ekki nóg með það að sóley stundi það grimmt að kveikja í eldhúsáhöldum heldur er hitinn farinn af líka. Vatnið og ofnar eru við frostmark. Þegar ég fór í bað í morgun angraði það mig óhjákvæmilega. Enginn hiti í tvo daga. En alfa-tútta, þessi elska, lofaði að hún myndi redda því á morgun. Við höfum fulla trú á henni. Koma svo, kona! Enn er ekkert í öðrum fréttum. Sárt.

Flokkar: Uncategorized

Einstök vinátta

apríl 28, 2007 · 1 ummæli

Núna fyrir örfáum dögum eignuðumst við Sóley nýjan vin. Hann er besti vinur okkar í öllum heiminum. Maður getur alltaf stólað á hann. Ef maður er langt niðri kætir hann mann, ef maður er hátt uppi kætir hann mann jafnvel meira. Við elskum hann út af lífinu og tölum um hann allan daginn. Þessi nýji vinur okkar heitir Bernice, en af því hann er töluvert svalari en meðalmaðurinn kýs hann að láta kalla sig Daxflame.

Við erum búnar að horfa á meira af þessu en við viljum viðurkenna og skemmtum okkur meira en þykir eðlilegt. Við byrjuðum á byrjuninni og á tveim dögum kláraði ég öll videóin sem eru fleiri en 60. Sóley er ennþá að vinna í þessu en miðar vel áfram. Sumir vilja meina að Bernice sé ekki til í alvöru, heldur sé leikinn karakter – hugsanlega náskyldur Silvíu Nótt. Ég vil ekki trúa því. Allri rökhugsun er ýtt til hliðar til að njóta Daxflame sem mest.

Í stuttu máli er Daxflame 15 ára strákur sem þráir að eignast vini og kærustu. Vinurinn sem hann hefur hvað mestan áhuga á er Jacob, stelpan sem hann þráir er Sophie (já við erum allar gullfallegar), en hún er kærasta Jacobs. Daxflame finnst það bara skemmtilegra. Góð þrenning þarna á ferð. Þessu segir hann frá í stuttum dagbókarfærslum á videóformi. Að fylgjast með þessu er ótrúleg upplifun. Siðferðislega vafasamt, en voðalega gaman.

Í öðrum fréttum: Sóley kveikti í eina góða eldhúsáhaldinu sem við áttum. Það var einhvers konar sleif með götum sem við notðum í staðinn fyrir sigti til að losa vatnið úr pottinum þegar við sjóðum pasta eða spagettí (Sem sagt á hverjum einasta fokkings degi!). Núna er allt sem við eigum rispað, borotið, gallað eða bráðnað. Hálf sleif hjálpar fáum… klárlega speki dagsins í dag.

-Soffía

Flokkar: Uncategorized

Sjálfhverfa eða dulin skilaboð?!

apríl 25, 2007 · 1 ummæli

Góðan dag elskulegu blogg lesendur,
Þegar þetta er skrifað er ég langt frá því að vera í rónni.
Það vill svo til að ég hef komist að raunverulegri ástæðu london dvalar Soffíu.
Þegar þetta er skrifað er ég stödd ein á heimili okkar,
Soffía er í atvinnuviðtali eða svo segir hún.
Á meðan hún hefur verið í burtu hef ég komist að sannleikanum.
Ég veit ekki hvort ég eigi að fara út í detail-a, en það sem ég sá þegar ég labbaði inn á baðherbergi rétt í þessu
gefur augljóslega til greina skiptingu og undirlyggjandi valdabaráttu á þessu heimili.
Eða öllu heldur hvað það er sem Soffía ætlast til hér í þessu landi.
Hún ætlar sér augljóslega að taka yfir heiminn, hvort að það séu einhver stærri nöfn í þessu með henni veit ég ekki að svo stöddu.
Ég þarf væntanlega ekki að taka fram hvorn tannburstann hún á -sjá-

já við notum blómavasa sem tannburstaglas.

Flokkar: Uncategorized

Update

apríl 22, 2007 · 3 Ummæli

Greindavísitala mín er ekki lægri en 70 og er ég þar af leiðandi ekki greind þroskaheft, ekki er vitað hvort hún sé mikið hærri en það og er það talið ólíklegt, ég er ekki á blússandi gelgju þó orðaforðinn og annarskonar súrleiki bendi til þess, ég er einfaldlega yfir meðal lagi súr í dag, enda að glíma við þynnku, í því ástandi er ég hvað súrust eða fyndin eins og ég kýs að kalla það. Þið megið kalla það eitthvað annað. Með þetta hugfast getið þið haldið lesningu ykkar áfram.

  • Við förum líklegast á eddarann í kvöld :) /Ed’s diner
  • Við pikkuðum upp þennan fína sófa eins og soffía hefur kosið að kalla þennan hægindarstól, upp á leiðinni heim af eldhúsfyllara — >> Myndir
  • Soffía er grínlaust búin að vera að þrífa stólinn í tvo tíma —>> Myndir
  • Alpha tútta (konan sem við leigjum íbúðina hjá) ætlaði að koma fyrir 3 tímum en hún er enn einhversstaðar annarsstadar en hér hjá okkur — augljóslega, takandi tillit til þess að hún er vel sver og búttuð túttan sú.
  • Já ég er frekar súr og er að drekka kók sem átti að vera þynnkubani líðandi stundar (það má deila um hvort að þessi setning hafi meikað sens, væri hægt að gera úr þessu ágætan samkvæmisleik) En þetta kók er ekki gott, krydd bragðið af pakijoint er á henni.
  • Jakkinn hennar Soffíu virðist ekki vera að fara vel í tjallann enda í hvert sinn sem önnur hvor okkar fer í honum út fyrir hússins dyr (oftast til að kaupa booze duh!) lendum við í veseni.
  • David tók sig samt skemmtilega “vel” út í kvikindinu (asnalegasta orðasamband í heimi? ef orðasamband mætti kalla? kvikindi.. ugh hrollur, já þið eruð öll fífl sem notið þetta sem og þið sem segið kjéllinn, deyið!, já ég er súr og má allt, má segja allt má skrifa allt má jafnvel fara yfiröll mörk þar sem mér finnst ég eiga það skilið allavega í dag:p) —->> Myndir
  • Mark teiknaði I (hjarta) (mynd af skaufa) á Soffíu, ætlaði að gera það sama við mig en mistókst eitthvað aðeins við skaufagerðina og úr því varð M sem varð síðan partur af orðinu Mark’s sem er(ritskoðað af soffíu) þar á eftir kom þessi líka krúttlegi dvergsvaxni skaufi. –>> Myndir
  • Soffía er enn að þrífa stólinn hun hættir örugglega ekki fyrr en tannburstinn er orðinn að engu!note, hún á bara einn tannbursta .. ef að henni finnst allt í lagi að nota hann á götustól og skolann aðeins eftir á.. godknows where it’s been… or not hann sér náttla ekki þar sem sólin ekki skín, þar sem guð skapaði einmitt sólina sem njósnatæki á okkur hér á jörð..

the hypathetical god auðvitað duh!

  • Þar sem ég má allt í dag leifði ég mér að skrifa myndir,

þar sem stundum átti þó bara við ein mynd (eintala) – eða í þessu tilfelli alltaf

þótt ég sé súr borða ég samt ekki majónes með skeið eins og Soffía var að reyna að ljúga að ykkur hérna í einhverri bloggfærslunni (sjá niður, scroll)

Flokkar: Uncategorized

M

apríl 22, 2007 · Rita ummæli

Þessi blogg færsla er tileinkuð dreng, dreng sem er yndislegur, yndislegra en flest allt í heiminum.. svona bara til að vera væminn. Þessi drengur er gull, gull í gegn alveg, eða allavega gull innst inni.
Þessi drengur ber nafnið Mark, þótt svo muni virðast að þetta sé ástarjátning til hans er svo ekki, kannski að vissuleyti en ekki af kynferðislegu ég er skotin í “þér” heiti. Mér þykir rooooosalega vænt um þennan dreng og ef að það er eitthvað sem ég óska mér á líðandi stundu er það að þessi drengur verði vinur minn að eilífu!
Mig langar til að gráta þegar hugurinn leifir sér að fara á þær slóðir að hugsa til þess að þessi drengur verði ekki ávalt í lífi mínu. Hugsanlega ekki það langt í það, sérstaklega ekki ef við flytjum nú heim innan hálfs árs.
Í kvöld hinsvegar ákváðum við soffía og mark að fara til íslands í sumar.
Mark hefur lengi dreymt um að koma til íslands enda sagði hann “mér er sama þótt að heimurinn farist það eru þrír staðir í heiminum sem ég vil að verði eftir” og á meðal þeirra var ísland. Ástæðan er einföld manninum finnst rosalega gaman að veiða og að heyra hann tala um veiði er upplífgandi!
Í kvöld á tilteknum stað á tiltekinni stundu ákváðum við þrjú að við ætluðum til íslands í sumar, við ætlum að taka roadtrip á elskunni minni (kagganum sjáiði til, hann stendur fyrir sinu og sakna ég hans meira heldur en nokkurs annars) og ferðast um landið á útileigu stemmara og fara að veiða, kynna honum fyrir djamminu í miðborginni.
Ef það er eitthvað eitt sem ég vil þá er það að þetta rætist því þessi drengur fær sólskinið til að koma undan skýjunum og það á virkum degi, jafnvel þegar skammdegið er sem mest!
bara out of respect mark ég elska þig!:*
pís séþig á morgun.. þótt þú lesir þetta ekki…
ég er í glasi en étiði böllinn á mér þetta kemur samt frá hjartanu.
góðanótt

Flokkar: Uncategorized

Höfnun á höfnun ofan

apríl 17, 2007 · 2 Ummæli

Mér, Soffíu “Elsku Túttu” Magnúsdóttur var dömpað í dag. Hreinlega sagt upp, látin flakka, með öllu afneitað…. af símasölufyrirtæki. Og það í landi tækifæranna. Í dag steig ég það stóra skref að verða innflytjandi. Neitað sökum tungumálaörðuleika. Símasala og grófur íslenskur pólitíkusahreimur ná greinilega ekki saman. Það er þá allavega komið á hreint. Ég neyðist þá til að gera eitthvað annað en að áreita fólk á daginn.

Mér hefndist samt fyrir þau örfáu símtöl sem ég hringdi af því seinna þann sama dag kom sölumaður við dyrnar hjá okkur. Sóley opnaði og hann horfir á hana í smá stund. Svo spyr hann hvort mamma og pabbi séu heima. Elsku Sóley, sem var næstum búin að jafna sig síðan barnið áreitti hana (sjá neðri færslu) brotnaði alveg saman. Páskaeggið er löngu búið svo hún er farin að borða majones með skeið.

Við viljum samt kenna græna jakkanum sem hún var í um þessa uppá komu… græna jakkanum mínum.

Flokkar: Uncategorized

Spaðastælar

apríl 16, 2007 · Rita ummæli

Já, við erum ýkt vinsælar í útlandinu. Að ganga á förnum vegi heima og heilsa heilum her af fólki á leiðinni út í búð er ekkert tiltökumál en þegar maður er orðinn spaði í útlöndum er maður kominn á hátindinn. Ég (soffía) fór út í Sainsburry’s áðan sem er álíka löng leið og heiman frá mér og út í Sunnubúð. Á leiðinni þangað hitti ég ekki hræðu. Fannst ég ein og yfirgefin, týnd í ókunnugu landi að kaupa útlendan djús. En sólin tók svo sannarlega að skýna á leiðinni heim. Þá rakst ég á þrjá sem ég heilsaði eins og sönnum spaða er lagið. Steve líka á leiðinni út í búð (Þess má til gamans geta að um daginn var tölvunni hans stolið og í bræði sinni kýldi hann hurð. Hann handleggsbrotnaði. Flott hjá þér karl), Róbert að labba með hundinn sinn og Joe stóð í gættinni á spjalli við nágranna. Alveg eins og í viðbjóðslega væmnu bíómyndunum sem allir vilja vera partur af.

Hverfið okkar er samt ekki alveg fullkomið. Hegðun og umgengni eru almennt til fyrirmyndar, fólk er ekki með læti á götum úti og nágrannarnir okkar öskra bara hvor á annan á kristilegum tímum. En blessuð börnin… öll snargeðveik. Einn góðviðrisdag sat Sóley í sínu mesta sakleysi úti í glugga (gluggarnir eru heil færlsa útaf fyrir sig, ótrúleg kvikindi) og horfir á börn að leik. Einn krakkinn, á að giska 14 ára, sér hana og spyr hvort hann megi nú ekki koma upp. “Ónei, litli minn. Farðu heim að leika.” Þá er krakkanum lítillega misboðið. Hvernig tjáir æska þessa lands gremju sína? Jú, bara alveg eins og í öðrum heimshornum. Þau flassa. Blygðunarkennd Sóleyjar er í molum. Hún hefur varla þorað út síðan og hefur misst alla trú á Bretanum.

Við erum í sameiningu að reyna að jafna okkur á þessu litla atviki. Besta meðalið er súkkulaði, þá kemur páskaeggið sem Viktor gaf okkur að góðum notum. Við vorum búnar að gleyma því í poka við sófann og fundum það núna á besta tíma. Sóley hefur grafið sorgir sínar djúpt í örmum Nóa Siríus og ætti að standa upp tvíefld von bráðar. Hún á líka vídeó af átinu. Hver veit nema hún deili því með heiminum einn góðan veðurdag.

Hertu upp hugann Sóley, við stöndum með þér.

Flokkar: Uncategorized

Fyrir Dóru

apríl 13, 2007 · 5 Ummæli

Sæl Dóra mín
Við erum búnar að vera í litlu bloggstuði enda ekki mikið að blogga um.
Borguðum fyrsta reikninginn okkar í gær, það var fyrir vatnsnotkun.
Vorum að fá gasreikninginn inn um lúguna í dag, borgum hann við fyrsta tækifæri.
Það vill svo skemmtilega til að allir reikningar eru á mínu nafni af einhverri undarlegri ástæðu, en no worries ef útí það fer þá mun ég taka Soffíu niður í svaðið með mér:)
Soffía er búin að vera að missa sig í kryddkaupum mér til mikillar gleði.
Maður þarf ekkert að eiga nein hráefni ef maður á nóg af kryddum til að krydda upp á það sem er til í skápunum hverju sinni.
Soffía var að stúta þriðju kryddbrauðsneiðinni sinni í dag, svo ég viti gætu hafa verið fleiri.
Við erum samt ekki svona brjálæðislega fátækari þetta er bara nokkuð gott stuff!
Hinsvegar býr Adam til besta heimalagaða hvítlauks brauð og heimalöguðu ostasósu to go with í heimi! Damn! Besta fyllerísmunch ever! Devitos hvað?!

Hvað segirðu annars skvís? Hvað er að frétta?
Endilega að skella inn hressleika og updates í komments:)

Flokkar: Uncategorized