o

Yfirtaka . .

september 21, 2008 · 4 Ummæli

. . já túttan ég sem mun hér eftir verða rituð sem “ég” hefur hér með yfirtekið bloggið.

Ég er ekki í miklu bloggstuði en einhverntíman verður maður nú að blogga. Ég ákvað að byrja þetta dæmi þar sem ég hef ekki undan að skrifa tölvupóst á hálfan heiminn. Svo verður maður netlaus í smá tíma og þá er bara varla hægt að gera annað en að svara tölvupóstum.

Í fréttum er þetta helst;
Ég er með vöðvabólgu á vinstri öxl, þetta er kannski ekki fréttnæmt en ég hef ALDREI í lífinu verið með svona mikla vöðvabólgu hélt hreinlega að það væri ekki hægt. Ég er á leiðinni með að fá krippu.
Þetta helvíti stendur allavega alveg útúr öxlinni á mér.
Ég alltaf jafn sæt, jafnvel með krippu hugsið ykkur það! – óskhyggja!

Elsku ég keypti handa elsku sér miða á elsku kooks þeir tónleikar fara fram 10 desember og ég kem til með að núa þessum miðum mínum í nefið á hverjum sem ég mæti og tala við (segja frá hvað ég sé heppin að eiga miða en ekki þau) ooooog vona að einhver finnist ég það óþolandi að hann vilji koma með mér því elsku tútta á tvo miða:)

Veðrið er búið að vera yndislegt síðustu daga ég er komin með ágætis sumartan og læti.
Ég tók þá skynsömu ákvörðun í gær að fara létt klædd út í stað þess að labba allsnakin um götur borgarinnar. Ég er ekki frá því að hafa séð eftir þessari skynsemi minni því það var einfaldlega of heitt!

Tútta hefur fest kaup á prentara og myndavéla snúru (í stað þeirra sem ég gleymdi á íslandi) og fleiri nauðsynjum svo þið ættuð að fara að sjá myndir og fleiri snilld fljótlega eftir helgina.

Skólinn er fínn, en þar sem ég veit til þess að þessi síða hefur verið þýdd yfir á önnur tungumál veit ég ekki hvort ég eigi að treysta tölvunördunum í bekknum til að finna ekki upp á slíku.
Þessvegna mun ég ekki koma til með að segja frá kjánalegum atvikum bekkjarfélaga minna.
En eins og alvöru bretar þá kíkjum við á pöbinn eftir tíma á föstudögum.

En ég þarf nú að fara og kveð hér að sinni, ég verð mjög sár ef enginn verður búinn að kommenta þegar ég kem til baka, sýnið mér smá sykur elskurnar!

elsk
Sóley

→ 4 CommentsFlokkar: Uncategorized

bedid eftir tappa

desember 31, 2007 · Rita ummæli

Langt sidan her hefur verid ritad..

tutturnar bunar ad fara saman til london einu sinni sidan thaer komu til islands, onnur tuttan buin ad fara aftur eftir thad og hinn tuttan a leidinni aftur a morgun a medan su fyrrnefnda er eitthvad ad rafa um bandarikin, sama tuttan er ad bida eftir ad einn tappi drullist yfir i hus fraenda hennar thar sem hun hengur thessa dagana einhversstadar i california.
Thegar appi maetir forum vid nokkur upp i bil og keyrum N15 til borg syndanna thar sem aevintyrin ofabida okkar.
Verdum 7 samtals i 4ra manna herbergi thad verdur hresst ad sja hvernig thad allt fer.
Verdum blekud a strip-inu thar til 2. januars svo er leidinni haldid til baka og svo er ekki mikid planad eftir thad.
tuttan a eftir ad rafa eitthvad meira um gullrikid adur en hun hoppar upp i flugvel og flygur til texas thar sem hun mun heilsa upp a aldrada fraenku sina (hun er ekki thad gomul en thad hljomar eitthvad svo vel) svo eru thad orfair dagar a klakanum adur en tutturnar sameinast a samt fylgihlutum og fara aftur til midju alheimsins lundunaborgar.

ef thid viljid hringja i tuttuna ykkar tha er numerid +1 858 353 7678 tuttan vel til i sma sykur.
timamismunurinn er 8 timar en ef thu telur thig vera med gledina medferdis og bakkus i thinu teymi tha er allt fair game

tappi er kominn og tuttan kvedur ad sinni

-soley

→ Leave a CommentFlokkar: Uncategorized

The End is near . .

september 9, 2007 · 4 Ummæli

 

Endirinn er nær, spurning hvort maður stingi sér til sunds og reyni að ná í bakkann hinumegin eða setjist aðeins niður á bryggjunni.

 

Margt að blogga um, en vegna lítillar nennu höfum við verið frekar súrar hvað varðar blogg skrif, margt sem á daga okkar hefur drifið. Ég er hætt í vinnunni og það eru innað við tvær vikur þangað til plönuð brottför okkar Soffíu til Íslands á að eiga sér stað.

 

Þegar við komum hingað var ekki lauf að sjá á trjánum, á innað við tvem vikum (áður en við fluttum í íbúðina) var vorið komið og fylgdumst við með sumrinu koma með skemmtilegum uppákomum sem sumrið hafið að bjóða.
Núna erum við hinsvegar að fylgjast með sumrinu fjarast og haustinu að koma. . .
Þá veit ég að þetta er að verða búið, þótt haust sé minn uppáhalds árstími og ekkert jafnast á við haust í Lundúnum.

 

Margt sem ég mun sakna, margt sem ég get ekki komið til baka til ef við förum núna . .
Það eru nú þegar komnir leigendur í íbúðina okkar. . sem flytja inn um leið og við förum núna eftir tvær vikur.
Ég á eftir að sakna rebba.

 

peace
Sóley

→ 4 CommentsFlokkar: Uncategorized

ég ætti kannski ekki að vera að blogga . .

ágúst 22, 2007 · 2 Ummæli

.. heldur ad eyða tímanum í að koma mér af stað út í banka og svo niðrí vinnu.
þannig að þetta verður stutt í dag . .

í morgunmat fékk ég mér bacon egg og súkkulaði shake.
Ég vil kenna föður mínum um ef ég fer að fitna.

Pabbi kom í heimsókn og var hér yfir helgina.
Við elduðum lummur, drukkum shake, kaffi te.. höfðum það náðugt.
Versluðum á krílin (kemur kannski úr harðri átt að kalla þau kríli, þar sem pabbi keypti peysu á mig í barnadeildinni í hm, þad var ekki stærsta peysan btw)
Fórum á gigs sötruðum öl og borðuðum fitandi mat.

Í gær horfðum við Soffía á mynd sem heitir “Santa clause conquers the martians” merkilega ágæt ræma það.
Maður hefði nú gefið þessu prumpudóma á yngri árum en þetta er svo gamalt og asnalegt að maður verður að hlægja að þessu. Þetta er líka eflaust eina bíómyndin sem jólasveinninn kemur við sögu sem er ekkert jólaleg.

Skrifa meira síðar,
xo
Sóley

→ 2 CommentsFlokkar: Uncategorized

þessi færsla fær engan tiltil

júlí 26, 2007 · 1 ummæli

Ég hef ekkert ritað hér í háa herrrans tíð, en nú er runnin upp sögustund. Svona í tilefni þess að ég er hundelt af hryðjuverkamönnum. Ég man ekki hvort við sögðum frá því hér, en fyrir nokkrum vikum síðan fórum við í göngutúr niður í bæ þar sem allt var afgirt út af hryðjuverkaógn. Við í sakleysi okkar stóðum í þeirri trú að einhverjir miklir spaðar væru að taka upp bíómynd. En nei, það stóð til að sprengja upp lýðinn. Það hefur ekkert bólað á þessum sprengjugæjum síðan þá og flestir löngu búnir að gleyma þessari uppákomu og einbeita sér nú fúll tæm að flóðunum, enda mun meira spennandi viðfangsefni. Nema í morgun. Þá hafði ég bestu afsökun í öllum heila heiminum fyrir því að vera of sein á ferð. Þegar ég mætti galvösk til vinnu nokkrum mínútum of seint og fékk að heyra “rosalega er gaman að sjá þig svona snemma í því í dag..” (hárfín kaldhæðni, prik fyrir þetta) gat ég með góðri samvisku svarað “En tappi minn kær, þetta er allt saman hryðjuverkamönnunum að kenna.” Það voru semsagt löggur, borðar, bílar og blikkandi ljós út um fokking allt. Einhvers staðar fann einhver “grunsamlegan pakka” fyrir utan og kallaði út allar löggur í heimi. Það var ekki nóg að girða af eina götu. Nei það mátti girða af götuna sem fyrirtækið stendur við, almenningsgarðinn á móti því, loka Temple lestastöðinni og binda fyrir næstu götu á eftir. Ég var komin hálfa leiðina að Embankment þegar ég komst framhjá lögguþyrpingunni. Svo þegar ég loksins komst inn í sjálft fyrirækið var mér bannað að fara út af mínu vinnusvæði. Ég ætlaði að ljósrita nokkur blöð, svona þar sem það hefur ekki verið álitið hættulegt hingað til. En mér var sagt að “í varúðarskyni” mætti ljósritun fara í tímabundið rassgat.

Klukkan hálftíu var það svo tilkynnt í hátalarakerfinu að lögreglan hafi lýst því yfir að svæðið væri nú öruggt.

Soffía

→ 1 CommentFlokkar: Uncategorized

M/N?

júlí 15, 2007 · Rita ummæli

Örstutt blogg hér, tútturnar nývaknaðar og Soffía er að gera til morgunmat.
Nú hef ég unnið í nýju vinnunni minni í tvær vikur og ég er alltaf þreyttari en allt þegar vinnudeginum líkur.
Tveir mismunandi staðir sem ég skiptist á að vinna á annar í 20 mín göngufæri og hinn í 50 mín göngu/lestar/strætófæri.
Staðurinn sem er lengra í burtu opnar líka klukkutíma fyrr þannig að það getur ruglað mig rosalega þegar ég er að flakka á milli staða mikið. Svona upp á svefninn.
Á föstudaginn var myndartaka upp í vinnu, hún átti sér stað í sama office space-i og ég vinn í.
Sat þarna ýkt spök við mína tölvu með nakið fólk á kanntinum.
Hressandi dæmi.

Við komumst að þvi um daginn að Mikki vinur okkar (ástralinn sem ég reyndi að ljúga að umheiminum að væri kærasti Soffíu)
Hann heitir ekkert Mick hann heitir Nick eða Nicholas. Mjög pínlegt moment þegar þetta komst upp á föstudaginn.
Við búnar að kalla hann Mick í 4 mánuði. Ooops!
Annars ætlar kallinn að kíkja yfir á eftir og grilla ofan í tútturnar sínar:)

Síðustu dagar og vikur hafa mikið farið í að hanga með Andy þar sem hann mun yfirgefa okkur núna í lok mánaðarins.

annars er fullt að frétta, það er bara lítið að frétta sem ég kæri mig um að setja inn á bloggið;)

-soley

→ Leave a CommentFlokkar: Uncategorized

Túttan að missa sig!

júlí 5, 2007 · 2 Ummæli

Svo mikið að frétta að það kemst ekki fyrir í einu bloggi.
Fyrir stuttu fórum við á tónleika með Micky Avalon, það vera rosalega gaman þar sem Mikki kallinn hefur own-að toppsætin á itunestopplistunum í öllum tölvum og ipodum sem koma inn á þetta heimili.
Ég missti mig í myndatökum og myndbandstökum þetta kvöld, en vegna lítilla nennu fer þetta ekki strax á netið.
Túttan ykkar er líka komin með vinnu og það í fetish búð, ekki nóg með það þá er túttan ykkar að leita sér að part time vinnu ofan á það.
Sjá hvort ég finni eins og kvöldvinnu tvö kvöld i viku eda eitthvað sniðugt.
Búin að spamma hotel bar-i og læti.
Veit ekki hvort ég eigi eftir að nenna ganga mikið á eftir þessari partime vinnu pælingu minni, en við erum orðnar peningagráðugar.

Loksins finnst mér ég hafa tilgang hér, ég er ekki heima að mygla allan daginn og leita að vinnu og taka til allandaginn.
Eða fara á fyllerí í garðinum með Mark í sólinni og er blekuð þegar Soffía kemur heim úr vinnunni.
Það gerðist reyndar bara tvisvar.

Ég er samt alltaf að spyrja stelpurnar sem ég vinn með hvað hitt og þetta er þarna í búðinni þar sem helmingurinn af þessu er eitthvað sem er svo far beyond my imagination að það nær engri átt!

Heimilið er fullt af fetish bæklingum og það hefur haldið lífinu í öllum partýum og samkomum í húsinu öllu.
Í einum bæklingnum fundum við þessa snilld.
Þessi gerð er reyndar ekki til í búðinni.
En hún heitir “I rub my bondage duckie”
Ég ætti ekki að þurfa útskýra tilgang baðandarinnar fyrir lekandi líðnum.

eeeen á morgun á ég frí og þá verða borgaðir reikningar veij!
ég kveð að sinni,
Sóley

e.s. Soffía er búin að vera að fara á kostum í kvöld, búin að halda þvílíkar einræður hérna upp úr svefni og gekk áðan í svefni. Þessi gleði á sér venjulega stað á hverju kvöldi mér til mikillar gleði.
Ég tel það vera mikinn kost að geta skemmt fólki hvort sem maður er vakandi eða sofandi.

once again. . .
peace,
Sóley

→ 2 CommentsFlokkar: Uncategorized

kjúklingaskærin koma að góðum notum

júní 30, 2007 · Rita ummæli

“soffia ertu i baði?”
“nei”
“hvað ertu að gera?”
“klippa á mér hárið”

smá retouch á gellan er orðin fín og sæt þökk sé mér og kjúklingaskærunum
spurning hvort okkur finnist þetta jafn sniðugt á morgun..

→ Leave a CommentFlokkar: Uncategorized

Upplýsingaflæði

júní 27, 2007 · 3 Ummæli

Ég er veik í dag og heimsbyggðin þarf að vita það. Ég fór ekki í vinnuna sem þýðir að í dag fæ ég enga köku. Harði, harði heimur.

→ 3 CommentsFlokkar: Uncategorized

Ekki rúnka nautinu…

júní 18, 2007 · 1 ummæli

Í gær, á sjálfan þjóðhátíðardag Íslendinga, fórum við, ásamt Guðrúnu, á Íslendingatónlkeika. Æla og Trabant léku fyrir dansi og stóðu sig alveg hreint með prýði. Á undan þeim spilaði einhver sem var svo slakur að við teljum hann ekki með. Hann fær ekki að vera hluti af þessu kvöldi og er hér með gleymdur. En þarna heyrðum við 17.júní lagið, Öxar við ánna og annað í þeim ofurklassa. Það var voða gaman eftir langa dvöl í útlandinu.

Fyrr um daginn kíktum við í Hampstead heath, en það er risarisastór almenningsgarður inní borginni. Adam sagði okkur að úr þessum garði gæti maður séð yfir alla London. Það reyndist vera lýgi en við sáum samt fullt af fólki í sleik og íra sem sátu við stein að sniffa poppers. Kannski ekki sambærilegt, en við gerum gott úr því sem við höfum.

Það vantar eitthvað niðurlag á þessa bloggfærslu en ég bara nenni ekki að spá í því

-Soffía
——————————————————————-

Ákvað að bæta við myndum á þessa færslu
kveðja Sóley


Rómantík


Skrítið tré


Lækjarspræna


Inngangur helvítis

Skemmtilega fjólublátt tré


Stranglega bannað að hjóla hér


Ógeðsleg skordýr


Vinir okkar sem buðu okkur í teiti, þeir áttu öl og poppers.
Við afþökkuðum pent.
Annars er gaurinn sem liggur skuggalega lýkur Guðmundi Vestmann.


Ælustrákar í sínu fínasta taui.

→ 1 CommentFlokkar: Uncategorized